Vefverslunin er opin allan sólarhringinn 577 6400Opnunartími

Afhending og skilmálar

Allt sem gott er að vita áður en þú pantar: hvenær varan er tilbúin, hvernig hún er send og hvernig skil fara fram.

Sækja

Pantað fyrir kl. 16 → tilbúið næsta virka dag eftir kl. 16 á Köllunarklettsvegi 4.

Fá sent

Með Póstinum heim (kl. 17–22), í póstbox eða á pósthús. Venjulega 2 virkir dagar.

Greiða

Pei eða greiðslukort. Öll verð eru með VSK.

Skila

14 daga skilafrestur í upprunalegum umbúðum, með kvittun.

Þegar þú verslar í vefverslun Hvells getur þú valið á milli þess að sækja vöruna í verslun Hvells eða fá hana senda með Póstinum.

Allar pantanir sem á að sækja og gerðar eru fyrir kl. 16:00 eru tilbúnar til afhendingar næsta virka dag eftir kl. 16:00. Ef þær eru gerðar eftir kl. 16:00 eru þær tilbúnar þar næsta virka dag eftir kl. 16:00.

Ef pöntunin er send fer hún á viðkomandi afgreiðslu í síðasta lagi næsta virka dag. Venjulega tekur ferlið ekki nema 2 virka daga. Starfsmenn flutningsaðila keyra pakka heim á milli kl. 17:00 og 22:00 ef óskað er eftir heimkeyrslu, en einnig er hægt að fá vöruna í næsta póstbox eða á næsta pósthús.