Um Hvell
Hvellur hefur verið brautryðjandi í sölu á reiðhjólum fyrir alla fjölskylduna og keppnisfólk, og er stærsti aðili í innflutningi á snjókeðjum fyrir allar gerðir farartækja.
Fyrirtæki sem byggir á gömlum merg
Áræðni og dugnaður Óskars var vel þekkt í viðskiptalífinu, en hann varð heilsu sinnar vegna að láta af viðskiptum. Hvellur.com varð til í kjölfarið, enda viðskipti á netinu orðin vaxandi þáttur í daglegu lífi fólks.
Fuji er upprunalega japanskt merki sem hóf fjöldaframleiðslu á reiðhjólum fyrir almenning árið 1899. Í dag er Fuji einn af fremstu hjólaframleiðendum í Ameríku og leiðandi í hönnun keppnisreiðhjóla. Hvellur hefur einnig flutt inn og þjónustað Puky jafnvægishjól og þríhjólin vinsælu frá Þýskalandi, sem eru framleidd á vernduðum vinnustað.
Vinnuvélaeigendur þekkja „grænu góðu“ snjókeðjurnar frá OFA í Finnlandi, vandaðar krossbandakeðjur smíðaðar úr eðalstáli. Keðjuviðgerðir hafa lengi verið stór hluti af rekstrinum.

Frá Grenivík á Köllunarklettsveg
- Upphafið
Grenivík
Hvellur á rætur að rekja til verktakafyrirtækis á Grenivík í eigu frændanna Ásgeirs Kristinssonar og Óskars Valdemarssonar.
- 1988
Súðarvogur 36
Leiðir frændanna skildu og Óskar flutti í höfuðborgina. Fyrirtækið var fyrst í Súðarvogi 36, því næst á Smiðjuvegi 30, síðan á Smiðjuvegi 4c og loks á Smiðjuvegi 8, grænni götu.
- 15. janúar 2004
Nýir eigendur
Guðmundur Tómasson og fjölskylda hans keyptu fyrirtækið. Guðmundur er framkvæmdastjóri og eigandi Hvells.
- 2. maí 2005
Súðarvogur 6
Fyrirtækið flutti aftur á gamlar slóðir, í Súðarvog 6 í Reykjavík.
- 2006
Fuji reiðhjól
Hvellur hóf innflutning á Fuji reiðhjólum. Áður flutti Hvellur inn og setti saman hjól frá m.a. Trekkingfox og Icefox, sem var eigið vörumerki.
- 5. október 2007
Smiðjuvegur 30, rauð gata
Hvellur flutti á Smiðjuveg 30 í Kópavogi og var þar í sautján ár.
- Október 2024
Köllunarklettsvegur 4
Versluninni á Smiðjuvegi var lokað og fyrirtækið flutti á Köllunarklettsveg 4, bakhús. Þar er lítil verslun og mest áhersla lögð á netverslunina.
Þjónusta og varahlutir
Varahlutir og þjónusta hafa alltaf verið aðalsmerki Hvells. Áhersla hefur verið lögð á að eiga til varahluti í þau tæki og tól sem seld eru í versluninni.
Eftir flutninginn á Köllunarklettsveg 4 er verkstæðið tímabundið lokað og ekki tekið á móti reiðhjólum, sláttuvélum eða snjókeðjum til viðgerðar. Hins vegar eigum við mikið úrval af vara- og aukahlutum á lager.



HVELLUR – G. Tómasson ehf
Kt. 550104-2960 · VSK-númer 81591
Köllunarklettsvegur 4 (bakhús)
104 Reykjavík
Sími 577 6400
hvellur@hvellur.is